9. október 2008

Landnám

Nú í haust hefur bæst við nokkur fjöldi nýrra erlendra söluaðila. Má þar m.a. nefna gullfallegar verslanir eins og Mint Marché og Japanese Closet á Spáni, Journal Standard í Japan og Nennapop á Ítalíu. Einnig eru verslanir í Danmörku, Svíþjóð, Þýskalandi, Póllandi og Grænlandi meðal nýrra söluaðila Farmers Market auk glæsilegrar verslunar Kisunnar í New York sem getið er í fyrri frétt.