Konungleg klæði

Það er okkur heiður að tilkynna að danski prinsinn Christian Valdemar Henri John (væntanlega Kristján XI í framtíðinni) og prinsesssan Isabella Henrietta Ingrid Margrethe eru nú eigendur að Farmers Market peysunum Litlu-Brekku og Litla-Fljóti.

Það var nýjasti söluaðili okkar, Halla Bogadóttir hjá Kraumi sem færði Mary, móður barnanna peysurnar að gjöf er hún heimsótti verslunina á dögunum.
Picture_3