1.október 2009
Farmers Market verðlaunuð
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra veitti tvær viðurkenningar úr Verðlaunasjóði iðnaðarins við hátíðlega athöfn í vikunni.
Það voru Bergþóra Guðnadóttir, hönnuður og stofnandi Farmers Market og Eyjólfur Friðgeirsson líffræðingur í Íslensk hollusta sem hlutu verðlaunin að þessu sinni.
Ráðherra afhenti hvorum um sig eina milljón króna, verðlaunagrip og viðurkenningarskjal.
Verðlaunagripurinn heitir Hjólið og er tákn mannsins fyrir uppgötvun, framfarir og virkni.
Verðlaunasjóðurinn var stofnaður af Kristjáni Friðrikssyni iðnrekanda en Samtök iðnaðarins sjá um að hýsa sjóðinn.
Nánari upplýsingar um Kristján og sjóðinn má finna hérna

Bergþóra Guðnadóttir, hönnuður